15% off

Flank

Flank – Kraftmikið bragð, einstök upplifun Fyrir þá sem kunna að meta alvöru nautakjöt. Flank er bragðmikill og skemmtilegur kjötskurður sem hefur unnið sér fastan sess hjá sælkerum um allan heim. Það sem gerir hann sérstakan er djúpt og ríkulegt nautakjötsbragð ásamt áberandi kjöttrefjum sem gefa honum sinn eigin karakter. Endalausir möguleikar Flank er frábært...

2,467 kr 2,903 kr

Product details

Flank – Kraftmikið bragð, einstök upplifun

Fyrir þá sem kunna að meta alvöru nautakjöt.

Flank er bragðmikill og skemmtilegur kjötskurður sem hefur unnið sér fastan sess hjá sælkerum um allan heim. Það sem gerir hann sérstakan er djúpt og ríkulegt nautakjötsbragð ásamt áberandi kjöttrefjum sem gefa honum sinn eigin karakter.

Endalausir möguleikar

Flank er frábært á grillið eða pönnuna, þar sem góð steiking dregur fram það besta í kjötinu. Með réttri eldun færðu safaríka og bragðmikla steik sem stendur fyllilega undir væntingum.

Hvort sem þú ætlar að bera fram glæsilega steik, útbúa girnileg tacos, fylla samlokur eða toppa ferskt salat, þá býður flank upp á endalausa möguleika.

Gerum góðan mat enn betri.

Ingredients
Nautakjöt
How to use
Eldunarráð

Flank nýtur sín best þegar það er steikt upp úr tólg við háan hita og fær fallega steikingarskorpu en helst safaríkt að innan. Leyfðu kjötinu svo að hvíla upp úr tólginni eftir eldun og skerðu það í þunnar sneiðar þvert á kjöttrefjarnar. Þannig nærðu fram bestu mögulegu mýkt og áferð.

Viltu fara skrefinu lengra? Steiktu og hvíldu flankið upp úr sælkeratólg til að fá djúpt og ríkt hægmeyrnunarbragð.
Nutrition
Næringargildi í 100 g

Orka: 790 kJ / 189 kcal
Fita: 8,5 g
– þar af mettaðar fitusýrur: 3,3 g
Kolvetni: 0 g
– þar af sykurtegundir: 0 g
Prótein: 28 g
Salt: 0,2 g

Pure ingredients

Quality you can trust

Icelandic craftsmanship

Easy online payment