15% off

Brisket

Reykt Brisket – Hægeldað með ástríðu Djúpt reykbragð, safaríkt nautakjöt og ómótstæðileg mýkt. Gott brisket verður ekki til í flýti. Hjá Gæði gefum við kjötinu þann tíma sem það á skilið. Við byrjum á því að nudda nautabringuna með sinnepi, salti, svörtum pipar og MSG til að draga fram náttúrulegt og kraftmikið bragð kjötsins. Því...

3,543 kr 4,169 kr

Product details

Reykt Brisket – Hægeldað með ástríðu

Djúpt reykbragð, safaríkt nautakjöt og ómótstæðileg mýkt.

Gott brisket verður ekki til í flýti.

Hjá Gæði gefum við kjötinu þann tíma sem það á skilið. Við byrjum á því að nudda nautabringuna með sinnepi, salti, svörtum pipar og MSG til að draga fram náttúrulegt og kraftmikið bragð kjötsins.

Því næst er kjötið reykt til að byggja upp djúpt og ríkulegt reykbragð. Að lokum fer það í hæga eldun þar sem það fær að verða meyrt og djúsí í gegn.

Útkoman er einstaklega meyrt brisket með kraftmiklu nautakjötsbragði, ljúfum reyktum keim og áferð sem bráðnar nánast á tungunni.

Einföld hráefni. Þolinmæði. Gæði.

Framreiðsla

Fullkomið í samlokur, hamborgarabrauð, tacos eða sem aðalréttur með þínu uppáhaldsmeðlæti. Hitaðu varlega, skerðu þvert á kjöttrefjarnar og njóttu!

Ingredients
Innihaldsefni: Nautakjöt (brisket), sinnep, salt, svartur pipar, bragðaukandi efni (mónónatríumglútamat, E621).
How to use
Upphitun

Best er að afþíða brisketið í kæli yfir nótt áður en það er hitað.

Í ofni og á grilli: Hitaðu ofninn í 100 °C. Settu kjötið í eldfast mót með smá bjór eða gosi og lokaðu vel með álpappír svo það haldist safaríkt. Hitaðu í 2–4 klukkustundir eftir stærð. Að lokum er gott að pensla smá hunangi yfir kjötið, krydda með salti og pipar og skella því á grillið til að fá fallega skorpu.

Í vatnsbaði: Settu lokaðar umbúðirnar í heitt vatn, um 75–80 °C, sem má ekki sjóða. Hitaðu í 1–2 klukkustundir eftir stærð.

Á pönnu: Fyrir tacos og samlokur er fljótlegast að skera kjötið í sneiðar meðan það er kalt og hita sneiðarnar á pönnu með smá soði í nokkrar mínútur.

Leyfðu kjötinu að hvíla í 20–30 mínútur eftir upphitun og skerðu það svo þvert á kjöttrefjarnar.
Nutrition
Næringargildi í 100 g

Orka: 1.130 kJ / 270 kcal
Fita: 18 g
– þar af mettaðar fitusýrur: 7 g
Kolvetni: 0,5 g
– þar af sykurtegundir: 0,2 g
Prótein: 27 g
Salt: 1,5 g
Allergens
Sinnep

Pure ingredients

Quality you can trust

Icelandic craftsmanship

Easy online payment